Auglýsing um óverulega breytingu á aðalskipulagi

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum þann 10. maí 2021 að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030.

Breytingin fjallar um efnistökusvæði í Hornafjarðarósi fyrir allt að 9.990 m3. Efnið verður tekið úr sjó í Hornafjarðarósi innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Efninu verður dælt, samtals um 9.990 m3 eða um 15.000 tonn. 

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta óskað eftir upplýsingum hjá starfsmönnum sveitarfélagsins. Uppdráttur.

Fyrir hönd bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri