Gönguleiðir í leiðsagnarappi
Boðið er upp á níu mismunandi gönguleiðir í Sveitarfélaginu Hornafirði í wappinu.
Sveitarfélagið Hornafjörður og Wapp-Walking app hafa samstarf um birtingu göngu-, hjóla- og hlaupaleiða í Sveitarfélaginu Hornafirði í leiðsagnarappinu Wappinu. Hægt er að nálgast snjallsímaappið bæði í App store og Play store.
Leiðir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Boðið er upp á níu mismunandi gönguleiðir í Sveitarfélaginu Hornafirði í wappinu.
- Söguganga um Höfn
- Náttúrustígur á Höfn
- Eskey
- Haukafell – Fláajökull (Hluti af gönguleiðinni Mýrajöklar)
- Haukafellshringur
- Skálafell – Heinabergslón (Hluti af gönguleiðinni Mýrajöklar)
- Heinabergshringur
- Hjallaneshringur
- Breiðármörk
Í boði Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Athugið allar leiðirnar innan sveitarfélagsins eru í boði Sveitarfélagsins Hornafjarðar eða annarra samstarfsaðila. Athugið að ferðirnar eru fríar þó að komi upp spurningin „Viltu kaupa þessa ferð?“ Smellið á það og leiðin er ykkar að endurgjaldslausu.
Allar gönguleiðirnar eru með kortum, gps hnitum, ljósmyndum og upplýsingum á íslensku og ensku.
Íbúar og gestir eru hvattir til að nýta sér gönguleiðirnar til að njóta útiverunnar og fræðast um sögu, menningu og náttúrufar svæðisins. Leiðarlýsingum er hlaðið á símann og hægt að nota þær án þess að vera í gagnasambandi.