Lausar lóðir
Upplýsingar um lóðir lausar til úthlutunar má sjá á kortasjá sveitarfélagsins map.is/hofn undir Lóðir til úthlutunar.
Upplýsingar um skipulagsskilmála má einnig sjá á kortasjánni
undir "Deiliskipulag".
Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um úthlutun lóða má nálgast hér.
Lóðaumsóknir fara fram í gegn um íbúagátt sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn samþykkir lóðarumsókn, umsóknir eru afgreiddar á síðasta fundi bæjarráðs sem vísar þeim til samþykktar bæjarstjórnar.
Umsóknir skulu því hafa borist á föstudegi í vikunni áður en bæjarráð tekur þær til umfjöllunar.
Við lóðarúthlutun greiðir lóðarhafi staðfestingargjald samkvæmt reglum sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
Nánari upplýsingar má nálgast í síma 470 8000 eða í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Hornafjarðar.