Skráning fasteigna
Byggingafulltrúi hvetur eigendur fasteigna að skoða skráningu fasteigna sem eru í þeirra eigu.
Um skráningu fasteigna gilda eftirfarandi lög og reglugerð:
- Lög um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001
- Reglugerð nr. 406/1978 um fasteignaskráningu og fasteignamat ásamt síðari breytingum
Byggingarfulltrúi hvetur eigendur fasteigna til að skoða skráningu fasteigna sinna, með því að fara á vefsíðu Þjóðskrár https://www.skra.is/leit-i-fasteignaskra/ og leita eigna eftir götuheiti, fasteignanúmer, eða landeignarnúmer.
Kemur í ljós að núverandi skráning endurspeglar ekki aðstöðu húsa/eigna, sækja þarf um breytingu á skráningu fasteigna. Umsóknir skal senda inn í gegnum Íbúagátt sveitarfélagsins.
Við breytingu á skráningu fasteigna þarf að hugsanlega að uppfæra nýja uppdrætti og skráningartöflur.
Hafa þarf í huga að óskráðar eignir eru ekki tryggðar. Ef viðkomandi er með óskráða viðbyggingu sem hefur lent í tjóni ásamt húseign verður óskráði hlutinn ekki skaðabótaskyldur.