Breyting aðalskipulags, Rauðaberg 2 lóð 1 – Niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 13. júní 2024 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um að ræða nýtt 10,3 ha verslunar- og þjónustusvæði á Rauðabergi 2 Lóð 1. Þar verður m.a. heimilað að reisa hótel/gistihús með allt að 50 gistirýmum.

Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Veðurstofu Íslands en þær gáfu ekki tilefni til breytinga á skipulaginu eftir auglýsingu.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar geta snúið sér til umhverfis- og skipulagsstjóra sveitarfélagsins.

Umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar