Breyting aðalskipulags, Skaftafell III-IV – niðurstaða bæjarráðs

Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 2. júlí 2024 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Umsagnir bárust frá Vatnajökulsþjóðgarði, Veðurstofu Íslands, Minjastofnun Íslands og Umhverfisstofnun en þær gáfu ekki tilefni til breytinga á skipulaginu eftir auglýsingu.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarráðs geta snúið sér til umhverfis- og skipulagsstjóra sveitarfélagsins.

Umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar