Grenndarkynning Júllatún
Grenndarkynning vegna viðbyggingar við Júllatún 9 skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Óskað hefur verið eftir heimild
til að byggja við húsið að Júllatúni 9 á Höfn og breyta notkun á bílskúr í
íbúðarhúsnæði. Fyrirhugað er að byggja bæði framan og aftan við húsið.
Þar sem ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag af svæðinu er hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um fyrirhugaðar framkvæmdir og skal athugasemdum komið til skila á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 5. janúar 2021.
Nánari upplýsingar og teikningar má finna hér að neðan.