Útboð - Hafnarbraut 27 - 1. áfangi

Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Hafnarbraut 27 - 1. áfangi“ eins og því er lýst í meðfylgjandi útboðsgögnum.

Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboð skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og er það skilgreint í útboðsgögnum.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið er fólgið í fyrsta áfanga á endurbótum að innan í ráðhúsinu. Þetta útboð felst í því að breyta rýmum á jarðhæð í opin vinnurými og breytingum á afgreiðslu. Verkið innifelur rif á léttum innveggjum, kerfisloftum, léttum klæðningum neðan við glugga og afgreiðslu. Síðan verður allt endurinnréttað samkvæmt teikningum og verklýsingum. Nýir veggir verða hefðbundnir gifsveggir spartlaðir og málaðir einnig verða settir upp glerveggir.

Ofnar og hitalagnir verða fjarlægðar þar sem þær eru núna á jarðhæðinni. Í staðinn verður ílögn brotin af gólfi/fræst á þessum sama hluta, komið fyrir hitalögnum og flotað/steypt yfir þær.

Öll gólfefni í þessum rýmum á jarðhæð verða endurnýjuð.

Allur rafbúnaður á jarðhæð verður endurnýjaður ásamt einhverjum breytingum í rafmagnstöflu hússins, sem stendur áfram á núverandi stað á jarðhæð, sem og breytingar í tölvuskáp í tæknirými sem staðsettur er á hæðinni fyrir ofan.

Koma þarf upp loftræstisamstæðu á jarðhæð hússins og bora fyrir loftræstilögnum í gegnum steypta loftaplötu og veggi sem eru ýmist hlaðnir eða steyptir. Leggja lagnir frá henni í öll rými neðstu hæðar og skila loftstokkaendum upp í gegnum loftaplötu upp á hæðina fyrir ofan.

Frágangur innanhúss nær í aðalatriðum til eftirtalinna verkþátta:

  • Rif innveggja, kerfislofta og lagna.
  • Rif gólfefna og ílögn hluta gólfa.
  • Smíði léttra innveggja, glerveggja og kerfislofta.
  • Endurnýjun hurðar og ísetningu á glugga
  • Ný gólfhitalögn ásamt meðfylgjandi búnaði.
  • Endurnýjun alls rafbúnaðar
  • Nýtt loftræstikerfi

Sjá nánar í útboðsgögnum.

Framkvæmdartími

Ráðhúsið verður í notkun út allan framkvæmdatímann. Verktaki þarf að gera ráð fyrir því að setja þurfi upp bráðabirgða lokanir inn á vinnusvæðið

Verklok eru 1. desember 2024.

Útboðsgögn

Útboðsgögn bera nafnið: „Hafnarbraut 27 - 1. áfangi“ og sundurliðast eftirfarandi:

  • Útboðslýsing.
  • Teikningar (sjá teikningaskrá) og verklýsingar arkitekta, gerðar af AVH arkitekta- og verkfræðistofu.
  • Teikningar (sjá teikningaskrá) og verklýsingar vegna lagna og loftræsingar gerðar af Verkhofi ehf.
  • Teikningar (sjá teikningaskrá) og verklýsingar vegna raflagna gerðar af Raftákn ehf.
  • Tilboðsskrá og Tilboðseyðublað.

Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Hafnarbraut 27 - 1. Áfangi“ Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Hafnarbraut 27 - 1. Áfangi“ Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: utbod@hornafjordur.is og bartek@hornafjordur.is og skal þá merkja “subject” reitinn: Hafnarbraut 27 - 1. Áfangi - FYRIRSPURN. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.

Skil og opnun tilboðs.

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en 15. júlí 2024 kl. 14:00. merktu: Hafnarbraut 27 - 1. áfangi - Tilboð.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði og verða þau opnuð samtímis í fundarsal Sveitarfélagsins á 3. hæð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir.

Geti bjóðandi ekki komið útfylltum útboðsgögnum á opnunarstað til opnunar, er heimilt að senda undirritað tilboð ásamt fylgigögnum með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út en bjóðandi skal þá jafnframt hafa póstlagt með ábyrgðarpóstsendingu, a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram, gögn sem fylgja eiga tilboðinu og skal staðfesting þess efnis fylgja með tölvupóstinum. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veitir: Bartek Andresson Kass, bartek@hornafjordur.is sími 470-8000