|
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson, stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi |
|
|
|
1. 2011001F - Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 324 |
Farið yfir fundargerðina, umræður um 4. lið, íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins. Starfsmenn eru að greina stöðu þeirra íbúa sem eru í almennri leigu í íbúðarhúsnæði sveitarfélagsins. Fundargerð samþykkt. |
|
|
Gestir |
Erla Björk Sigurðardóttir félagsmálastjóri |
|
|
|
|
2. 202011022 - Endurnýjun samnings við Markaðsstofu Suðurlands |
Áfangastaðaáætlun hefur verið unnin innan hvers landshluta með aðkomu og stuðningi Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála á forsendum landshlutanna. Markaðsstofurnar gegndu þar lykilhlutverki þar sem þekking, yfirsýn, tengslanet sem og virkt samtal og samvinna inn á svæðunum lagði grunninn að verkefninu. Í aðdraganda og kjölfar vinnu við Áfangastaðaáætlanir (DMP) hafa mótast umræður og hugmyndir að áframhaldandi þróun og hlutverkum Markaðsstofanna og hugmyndir verið kynntar að þróa þær yfir í að verða Áfangastaðastofur
|
Dagný kynnti hugmyndir um nýja Áfangastaðastofu Suðurlands, unnið er að nýrri áfangastaðastofu á grunni Markaðsstofu Suðurlands.
|
|
|
Gestir |
Dagný H. Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands |
|
|
3. 202009100 - Erindisbréf velferðarnefndar |
Félagsmálanefnd leggur til að að bæjarráð samþykki erindisbréf velferðarnefndar að einum lið undanteknum, ásamt því að skoða hvort barnavernd eigi heima í sér nefnd með skýrum verklagsreglum og gildi um þau mál aðrar reglur en önnur mál í nefndinni.
|
Bæjarráð felur starfsmanni að ganga frá erindisbréfinu í samræmi við umræður á fundinum. |
|
|
|
4. 202011064 - Kynning: Leigufélagið Bríet |
Kynning á Leigufélaginu Bríet sem er sjálfstætt starfandi leigufélag í eigu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, stofnað að norrænni fyrirmynd og rekið án hagnaðarsjónamiða. Markmið Bríetar að vera hluti af uppbyggingu og styrkingu leigumarkaðar sem stuðlar að öryggi á langtímaleigumarkaði með sérstaka áherslu á landsbyggðina og í samstarfi við sveitarfélögin í landinu. Langtímamarkmið Bríetar er að stuðla að nýsköpun og uppbyggingu þar sem þörf er á því á landsbyggðinni.
|
Bæjarstjóri greindi frá kynningu SASS um Leigufélagið Bríet í síðustu viku. |
Kynning sveitarfélög 2020.pdf |
|
|
|
5. 202011050 - Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta |
Erindi frá Stígamótum þar sem óskað er eftir fjárstuðningi og samstarfi um rekstur félagsins.
|
Bæjarráð samþykkir að veita 100 þúsund kr. styrk til Stígamóta sem tekið verður af óráðstöfuðu. |
Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta.pdf |
|
|
|
6. 202011019 - Hagaleira 14: Umsókn um frest á framkvæmdum |
Erindi frá Ingvari G. Snæbjörnssyni þar sem óskað er eftir fresti á framkvæmdum að Hagaleiru 14.
|
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 31. mars 2021. |
|
|
|
7. 202011044 - Umsögn: Aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, 43. mál. |
Erindi frá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við tillögu til þingsályktunar um aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
|
Lagt fram til kynningar. |
Umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, 43. mál..pdf |
|
|
|
8. 202001081 - Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs |
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
118. fundur 4.11.2020.pdf |
|
|
|
9. 202011059 - Ársfundur Jöfnunarsjóðs 18. nóv 2020 |
Ársfundur Jöfnunarsjóðs verður haldinn 18. nóvember í fyrsta skipti á rafrænan hátt.
|
Bæjarstjóri Matthildur Ásmundardóttir verður með erindi á ársfundinum um áhrif Covid - 19 á sveitarfélögin og helstu áskoranir. Lagt fram til kynningar. |
Ársfundur.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:15 |