Skipurit Umhverfis- og skipulagssviðs
Umhverfis- og skipulagssvið
Sviðið fer með umhverfis- og skipulagsmál og hefur umsjón með umhverfis- og sorpmálum. Einnig heyra hreinlætismál undir sviðið ásamt eftirliti vegna dýrahalds, sem og meindýravarnir. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs er starfsmaður umhverfis- og skipulagsnefndar og heyrir beint undir bæjarstjóra.
Undir sviðið heyra meðal annars:
- Yfirumsjón með umhverfis- og skipulagsmálum
- Sorpmál, hreinlætismál, dýrahald og úrgangsstjórnun
- Aðal- og deiliskipulagsmál
- Mengunarmál, verndarsvæði og landupplýsingar
- Umferðaröryggismál
- Loftslagsmál