Fullt starf við Búsetudeild
Velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir 100% stöðu við Búsetudeild
Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingi í 100% stöðu í Búsetudeild. Starfið felur meðal annars í sér aðstoð á heimilum einstaklinga við athafnir daglegs lífs með því markmiði að efla einstaklinginn til sjálfshjálpar ásamt því að veita félagslegan stuðning. Starfið er unnið í vaktavinnu og þarf viðkomandi starfsmaður að ganga dag-, kvöld-, og bakvaktir.
Hæfniskröfur:
- Stundvísi, samviskusemi, sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði í starfi.
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni.