Slökkvilið Hornafjarðar óskar eftir öflugum einstaklingum.
Slökkvilið Hornafjarðar óskar eftir öflugum einstaklingum til starfa. Um er að ræða almenn slökkvistörf sem felast í því að sinna útköllum, æfingum og öðrum verkefnum að beiðni slökkviliðsstjóra.
Menntunar-og /eða hæfniskröfur:
Umsækjandi skal uppfylla hæfniskröfur 13.gr. reglugerðar Um starfsemi slökkviliða nr. 747/2018
- Hafi góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta listaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
- Hafi iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilegar menntum og reynslu ( má víkja frá í undantekningartilfellum )
Að auki er æskilegt að starfandi slökkviliðsmenn uppfylli eftirtalin skilyrði
- Aukin ökuréttindi C til að stjórna vörubifreið
- Standast læknisskoðun og þrekpróf
- Hafa jákvætt hugarfar og færni í mannlegum samskiptum
- Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs er kostur
- Vilji til að afla sér viðeigandi menntunar slökkviliðsmanna
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á netfangið borgthor@hornafjordur.is .
Nánari upplýsingar gefur Borgþór Freysteinsson slökkviliðsstjóri í síma 470 8015. Umsóknarfrestur er til 8. september 2024.