Starf við félagslega heimaþjónustu
Velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir 50% stöðu við félagslega heimaþjónustu
Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingi í 50% stöðu við félagslega heimaþjónustu. Meginmarkmið starfsins er að aðstoða þjónustunotendur, sem þurfa á aðstoð að halda, við athafnir daglegs lífs, aðallega heimilisstörf og að draga úr félagslegri einangrun. Áhersla er lögð á að bera virðingu fyrir einkalífi, heimili einstaklings og fjölskyldu hans.
Starfið er unnið í dagvinnu.
Hæfniskröfur:
- Stundvísi, samviskusemi, sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði í starfi.
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni.