Sumarstörf við heimilisþrif
Velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir sumarstörf við heimilisþrif
Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingi í sumarafleysingar við heimilisþrif. Meginmarkmið starfsins er að aðstoða þjónustuþega sem þurfa á aðstoð að halda við athafnir daglegs lífs, aðallega heimilisstörf, sem og félagslegur stuðningur. Áhersla er lögð á að bera virðingu fyrir einkalífi, heimili einstaklings og fjölskyldu hans.
Starfið er unnið í dagvinnu.
Hæfniskröfur:
- Stundvísi, samviskusemi, sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði í starfi.
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf
Umsóknir skulu sendar á netfangið sigridurhelga@hornafjordur.is eða á bessy@hornafjordur.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Helga Axelsdóttir forstöðumaður stuðnings- og virkniþjónustu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni.