Rafræn vöktun
Upplýsingagjöf
Í Sveitarfélaginu Hornafirði eru eftirlitsmyndavélar sem taka upp myndefni. Um er að ræða rafræna vöktun sem fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Hér er að finna upplýsingar um rafræna vöktun sem sveitarfélaginu ber að veita einstaklingum samkvæmt persónuverndarlögum.
Tilgangur og lagagrundvöllur vöktunar
Eftirlitsmyndavélar eru settar upp í öryggis- og eignavörslutilgangi. Upptaka og önnur meðferð myndefnis fer því fram á grundvelli lögmætra hagsmuna sem fólgnir eru í að tryggja öryggi manna og muna. Vinnsla persónugreinanlegra upplýsinga styðst við heimild í 6. tölul. 9. gr. persónuverndarlaga.
Aðgangur að myndefni
Einungis þeir sem hafa heimild til, og þurfa þess starfs síns vegna, hafa aðgang að myndefni sem tekið er upp. Myndefni er eingöngu skoðað ef ástæða er til, svo sem ef slys hefur orðið eða grunur leikur á um refsiverðan verknað.
Þegar um ræðir slys eða refsiverðan verknað kann myndefni að vera miðlað til lögreglu. Þá kann slíku myndefni að vera miðlað, ef það er nauðsynlegt, til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja, til dæmis þegar tryggingafélag þarf að taka afstöðu til bótaskyldu. Að öðru leyti er myndefni ekki miðlað nema mælt sé fyrir um slíkt í lögum eða samþykki þess sem upptaka er af liggur fyrir.
Varðveislutími myndefnis
Myndefni sem til verður við rafræna vöktun er varðveitt í 30 daga í samræmi við reglur nr. 50/2023 um rafræna vöktun. Myndefni kann að vera geymt lengur ef það ber með sér upplýsingar um slys eða refsiverðan verknað.
Réttur þeirra sem koma fyrir á myndefni
Sá sem kemur fyrir á myndefni á rétt á að skoða gögn, og eftir atvikum fá afrit af persónuupplýsingum, sem verða til um hann við vöktunina. Sá réttur er þó háður því skilyrði að hann skerði ekki réttindi annarra.
Einstaklingur sem sætir vöktun á jafnframt rétt á að andmæla henni.
Vilji viðkomandi nýta réttindi sín skal beiðni þess efnis send á persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins í gegnum netfangið karl@hornafjordur.is, sjá jafnframt frekari upplýsingar um persónuverndarfulltrúa að neðan.
Persónuverndarfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur tilnefnt persónuverndarfulltrúa í samræmi við persónuverndarlög. Persónuverndarfulltrúi sveitarfélagsins er Karl Hrannar Sigurðsson. Þeir sem koma fyrir á myndefni og hafa frekari spurningar um rafræna vöktun, eða vilja nýta réttindi sín, geta send erindi á Karl í gegnum netfangið karl@hornafjordur.is.
Eftirlitsaðili
Persónuvernd hefur eftirlit með því að rafræn vöktun fari fram í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. Sá sem kemur fyrir á myndefni getur lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd ef hann telur sveitarfélagið fara gegn ákvæðum persónuverndarlaga. Nánari upplýsingar um Persónuvernd má finna á vef stofnunarinnar, www.personuvernd.is.
Ábyrgðaraðili
Sveitarfélagið Hornafjörður er ábyrgðaraðili rafrænnar vöktunar.
Samskiptaupplýsingar ábyrgðaraðila:
- Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639
- Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði
- Símanúmer: 470-8000
- afgreidsla@hornafjordur.is