Grunnskóli Hornafjarðar
Grunnskóli Hornafjarðar var stofnaður 1. ágúst 2007. Kennsla fer fram á tveimur starfsstöðum. Í Hafnarskóla eru til húsa nemendur í 1. – 6. bekk og í Heppuskóla eru nemendur 7. – 10. bekkjar. Auk þess stunda nemendur nám í list- og verkgreinum í Vöruhúsinu sem er verkmenntahúsi sveitarfélagsins, í Tónskóla Austur - Skaftafellssýslu og nám í hreyfingu fer fram í mannvirkjum íþróttamiðstöðvarinnar. Skólastjóri er Þórdís Þórsdóttir. Aðstoðarskólastjórar eru Rósa Áslaug Valdimarsdóttir á yngra stigi og Eygló Illugadóttir á eldra stigi.
Kjörorð skólans eru virðing – metnaður – vinátta – frelsi – jákvæðni. Kjörorðin marka grunninn að stefnu skólans ásamt umhverfisvernd, heilsueflingu og nám við hæfi, þau eru einnig samofin uppbyggingarstefnunni eða uppeldi til ábyrgðar, sem skólinn vinnur eftir. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans.