Tónskólinn

Námskrá og skóladagatal

Tónskóli A-Skaft. kennir samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskóla sem gefin var út árið 2000. Stefna skólans er að allir nemendur fari í áfangapróf samkvæmt fagnámsskrám.

Nemandi fær 1 klst. á viku í einkatíma á hljóðfæri sem getur skipst  frá því að vera 15 mín 4 sinnum í viku niður í 2x 30 mín á viku. Fer það eftir nemanda og hvar hann stendur í náminu. Almenn regla er að nemandi á fyrsta ári mætir 2 x í viku hálftíma í senn. Á öðru til þriðja ári  byrjar nemandinn í tónfræðanámi sem er 1 klst. á viku ásamt einkatímum á hljóðfæri. Einnig byrja nemendur sem eru á hljómsveitarhljóðfærum í markvissum hljómsveitaræfingum.

Þegar nemandi er kominn í miðnám þá geta einkatímarnir breyst yfir í 1 tíma á viku í eina klukkustund í senn. Kennari metur það með hverjum nemanda. 

Allir nemendur eiga að koma reglulega fram yfir veturinn s.s á nemendatónleikum og eða öðrum uppákomum sem tónskólinn tekur að sér.  Ætlast er til að nemandi sé undirbúinn og hafi unnið að verkum sem viðkomandi á að spila.

Forsendan fyrir því að læra á hljóðfæri er að æfa sig heima og gott samstarf sé milli heimilis og skóla.

Skóladagatal 2024 - 2025

16 - 21. ág. starfsdagar
22. ág. miðvikud.  1. kennsludagur

30. ág. föstud. starfsdagur (haustþing) nemendur frí
11.-12. nóv. mánud. og þriðjud. Vetrarfrí.
20. des. föstud.  síðasti kennsludagur fyrir jólafrí

6. mánud.  Kennsla hefst eftir jólafrí

15. feb. laugard. Dagur tónlistarskólanna, opið hús og tónleikar m.m.
28.feb. og 3. mars föstud. og mánud. Vetrarfrí

14. apríl mánud.  Páskafrí hefst

22. apríl þriðjudagur.  Kennsla hefst eftir páskafrí
24. apríl fimmtud.  Sumardagurinn fyrsti – frí
25. apríl föstudagur. Skipulagsdagur (frí hjá nemendum)

1. maí fimmtudagur -  frí
9. maí fimmtud. uppstigningardagur - frí
20. maí mánud. annar í hvítasunnu - frí

22. maí fimmtud.  Skólaslit.

23.- 28. maí  starfsdagar