Félagsleg ráðgjöf
Markmið félagslegrar ráðgjafar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar þannig að sérhver einstaklingur geti sem best notið sín í samfélaginu.
Félagsleg ráðgjöf tekur
meðal annars til ráðgjafar vegna atvinnuleysis, veikinda, húsnæðisleysis,
fjárhagsvanda, fötlunar, öldrunar, fjölmenningarmála, málefna barna og
ungmenna, fjölskylduvanda og áfengis- og vímuefnavanda.
Sækja skal um félagslega ráðgjöf á íbúagátt sveitarfélagsins, nánari upplýsingar veitir starfsfólk fjölskyldu- og félagsþjónustu sveitarfélagsins á netfanginu velferd@hornafjordur.is eða í síma 470-8000.