Báran
Gunnar Ingi Valgeirsson forstöðumaður
Báran er fjölnota íþróttaaðstaða sem tekin var í notkun í desember 2012. Í Bárunni er gervigras 50 m. að breidd og 70 m. að lengd. Báran er öllum opin á opnunartíma, Íþróttafélagið Sindri nýtir aðstöðuna á veturnar undir knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Grunnskólinn nýtir aðstöðuna einnig undir íþróttastarfsemi og nemendur nýta sér Báruna í frímínútum.
Skinney Þinganes veitti sveitarfélaginu Báruna að gjöf árið 2012.
Opnunartími Bárunnar er frá kl. 06:00 til 22:00 alla daga ársins.