Auglýsing eftir byggingaraðilum

13.1.2021

Leigufélagið Bríet og Sveitarfélagið Hornafjörður óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða.

Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Höfn í Hornafirði og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir mánudaginn 1. febrúar 2021.

Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson byggingafræðingur hjá HMS (elmar.erlendsson@hms.is).