Ekkert E. coli – suða neysluvatns óþörf

21.1.2025

Samkvæmt frumgreiningu rannsóknarstofu Matís á vatnssýnum sem tekin voru af hálfu Heilbrigðiseftirlits Austurlands í dreifikerfi vatnsveitunnar er neysluvatnið ómengað og því hæft til neyslu. Þegar frumniðurstöður eru með þessum hætti þá er óhætt að segja að ekki séu e.coli eða kólí bakteríur í vatninu. Ef hinsvegar hefðu verið vísbendingar um bakteríur í frumgreiningu hefði þurft að bíða eftir endanlegum niðurstöðum á umfangi þeirra.

Það er því óhætt að gefa það út að suða neysluvatns er óþörf.