Frestun til fimmtudagsins 12. október. - Höfn framtíðarinnar - Hvernig búsetuumhverfi viljum við?
Íbúar athugið!
Íbúafundi vegna mótunar byggðar og umhverfis á Höfn hefur verið frestað til fimmtudagsins 12. október vegna slæmrar veðurspár og röskunar á samgöngum frá Reykjavík til Hafnar fyrir gesti fundarins frá Alta ráðgjafafyrirtæki.
Bæjarstjórn býður til íbúafundar um mótun byggðar og umhverfis á Höfn. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 12. október kl. 17:00-19:30 í Vöruhúsinu.
Tilefni fundarins er yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Fundinum er ætlað að fá fram sjónarmið og hugmyndir íbúa um framtíðarsýn og áherslur í skipulagi bæjarins. Sem upplegg að umræðum kynna skipulagsráðgjafar frá Alta greiningu og drög að markmiðum.
Allir sem hafa áhuga á framtíð bæjarins eru hvattir til að mæta! Boðið verður upp á súpu og brauð.
Upplýsingar um endurskoðun aðalskipulags má finna á vefnum hornafjordur.is/adalskipulag.