Frístund í sumar
Fjölbreytt leikja-, listnámskeið og menningarstarf í sumar fyrir krakka.
Nóg verður að gera í sumar fyrir krakka í 1.- 4. bekk.
Ungmennafélagið Sindri verður með leikjanámskeið og fleira fjölbreytt starf. Barnastarf Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar verður á sínum stað og mun bjóða upp á skemmtilegar ferðir fyrir krakkana.
Krakkaklúbburinn Kóbra mun vera með fjölbreytt og skemmtilega listanámskeið og svo stendur sveitarfélagið fyrir gæslu (Frístund) fyrir krakka frá 1. - 4. bekk.
Skoðið nánar um Sumarfrístund