Gagnlegar upplýsingar vegna kórónaveirunnar

4.2.2020

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (2019-nCoV). 

Kórónaveirur eru þekkt orsök kvefs og þær geta einnig valdið alvarlegri lungabólgu og jafnvel dauða. Veiran sem um ræðir núna er áður óþekkt. Faraldsfræðilegar upplýsingar eru enn takmarkaðar og því er margt óljóst varðandi útbreiðslu sjúkdómsins. Það er ekkert bóluefni til gegn þessari veiru og því ekki hægt að bólusetja við henni. Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta o.s.frv. Veiran getur einnig valdið alvarlegum veikindum með neðri öndunarfærasýkingum og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4-8 degi veikinda.

Enginn einstaklingur hefur hingað til greinst með veiruna hér á landi en embætti landlæknis og sóttvarnalæknir hafa lýst yfir óvissustigi í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna hinnar nýju kórónaveiru.

Umdæmis- og svæðislæknar sóttvarna og sóttvarnalæknir hafa samstarf um framkvæmd nauðsynlegra sóttvarna og njóta aðstoðar lögregluyfirvalda ef með þarf. Umdæmislæknir sóttvarna í umdæminu er Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga HSU og svæðislæknir sóttvarna er Elín Freyja Hauksdóttir, læknir HSU Hornafirði.

Hvað get ég gert til að forðast smit?

Handþvottur og spritt er mikilvægast til að forðast smit. Einnig skal varast úðasmit.

Viðbrögð ef grunur er um að einstaklingur sé smitaður:

  • Hafa samband í síma 1700 til að fá ráðleggingar um til hvaða ráða skuli gripið.
  • Almennt er ekki ráðlagt að flytja einstaklinginn strax á heilbrigðisstofnun nema um alvarleg veikindi sé að ræða.
  • Ef einstaklingur er grunaður um smit skal setja á hann sóttvarnagrímu til að hindra frekara smit.
  • Ef einstaklingur er grunaður um smit skal einnig huga að sóttkví þeirra sem eru í nánast umhverfi og hafa skal samráð við fagaðila í síma 1700.
  • Hver og einn þarf að huga að smitleiðum og koma í veg fyrir að smit berist.

Almennar ráðleggingar um hreinlæti gilda og eru afar mikilvægar til að draga úr dreifingu veirunnar:

  • Endurtekinn handþvottur og notkun handspritts reglulega.
  • Ef einstaklingur hóstar ber að halda fyrir munn/nef og þvo sér á eftir.
  • Ef mögulegt er, forðast að vera í < 2 metra fjarlægð frá hugsanlega sýktum einstaklingi.
  • Notkun hanska getur hjálpað til. Ástandið er vaktað á hverjum degi.

Gagnlegar upplýsingar er að finna á heimasíðu embættis landlæknis og hjá almannavörnum. Sveitarfélagið Hornafjörður beinir því til íbúa að fylgjast með upplýsingum þar.

Almannavarnir – vefsíða

Almannavarnir – Facebook

Landlæknir – vefsíða

Landlæknir – Facebook