• Hofn-

Geðlestin í Gulum september

Nýheimar Höfn í Hornafirði Miðvikudagur 25. september kl. 20:00

17.9.2024

Í tilefni af Gulum september[1] ætla landssamtökin Geðhjálp að ferðast um landið og bjóða upp á samtal um geðrækt og geðheilsu í bland við tónlist og gleði. Geðlestin er heiti verkefnisins en það hefur áður farið um landið en þá var áherslan á börn og ungmenni en núna er ætlunin að hitta sveitarstjórnir, félags- og skólamálayfirvöld annars vegar og almenning hins vegar. Við hittum sveitarstjórnir og félags- og skólayfirvöld í hádeginu en almenning á kvöldfundum.

Á hádegisfundinum kynnir Geðhjálp ýmsa geðheilsuvísa (mælikvarða), fjallar um mikilvægi geðræktar, hvernig draga megi úr fordómum og mögulegar leiðir til þess að efla forvarnir. Markmiðið er einnig að eiga samtal við heimafólk og hvað helst brennur á því í tengslum við geðrækt og geðheilbrigði.

Kvölddagskrá er aðeins öðruvísi sett upp. Hún hefst á stuttri kynningu á Geðhjálp og starfi samtakanna. Eftir það verður farið yfir mikilvægi reglulegrar geðræktar út lífið og ýmsar leiðir þar nefndar. Þá mun einstaklingur segja frá sinni reynslu af geðrænum áskorunum og hvernig bata var náð og hvaða verkfæri hafa reynst best. Eftir reynslusöguna verða umræður/samtal. Í lokin stíga þeir félagar Emmsje Gauti og Þormóður á svið og leika nokkur lög til að árétta að geðrækt er líka gleði og skemmtun. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Gert er ráð fyrir að kvöldfundurinn standi í 80 til 90 mínútur.

[1] Gulur september er forvarnarátak sem er ætlað að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna.

Viðkomustaðir

Mánudagur 23. september

Hádegi Sauðárkrókur – kvöld kl. 20:00 Dalvík Berg menningarhús

Þriðjudagur 24. september

Hádegi Húsavík – kvöld kl. 20:00 Vopnafjörður Safnaðarheimilið

Miðvikudagur 25. september

Hádegi Egilsstaðir – kvöld kl. 20:00 Höfn í Hornafirði Nýheimar

Fimmtudagur 26. september

Hádegi Vík í Mýrdal – kvöld kl. 19:30 Vestmannaeyjar safnaðarheimili Landakirkju

Mánudagurinn 30. september

Hádegi sveitarfélögin við Ísafjarðardjúp – kvöld kl. 20:00 Patreksfjörður safnaðarheimili

Þriðjudagur 1. október

Hádegi Stykkishólmur – kvöld kl. 20:00 Snæfellsbær Klif félagsheimili