• Eldur-is-mjukur-mosi

Grunn- og leikskólinn í Hofgarði

6.5.2024

Verkefni frá Grunn- og leikskólanum Hofgarði voru sýnd í Perlunni á Barnamenningarhátíð

Nemendur í Grunn- og leikskólanum Hofgarði unnu saman þvert á aldur að þremur sjálfstæðum þematengdum verkum sem snerta á náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs í nærumhverfi nemenda. 

Fyrsta verkið nefnist Dagsferð í Skaftafell þar sem náttúra fléttast saman við form í umhverfi okkar í gegnum birki og aðrar jurtir í Skaftafelli. 

Dagsferd-skaftafell

Í verkinu Kolagerð og Svartifoss er unnið með kolagerð og hún skoðuð í tengslum við liti og form í Svartafossi. 

Kolagerd-svartifoss

Þriðja verkið er textílverk þar sem nemendur unnu með hugmynd að náttúrufána fyrir þemað Eldur, ís og mjúkur mosi, þar sem margs konar aðferðum í textíllist er blandað saman í heildstætt verk sem gæti verið einkennisfáni Vatnajökulsþjóðgarðs. Nemendur þæfðu ull í mosaþembu, krosssaumuðu snjókorn, máluðu ís og flosuðu eld. Að lokum var nokkrum dúskum bætt við. 

Eldur-is-mjukur-mosi

Verkin voru sýnd í sýningarrými Náttúruminjasafns Íslands í Perlunni og var sýningin samsýning nemenda í Egilsstaðaskóla, Grunnskóla Hornafjarðar, Grunn- og leikskólans í Hofgarði, Kirkjubæjarskóla, Reykjahlíðarskóla, Urriðaholtsskóla og Öxarfjarðarskóla.

Sýningin var afrakstur samstarfs Vatnajökulsþjóðgarðs, Náttúruminjasafns Íslands, og fyrrnefndra grunn- og leikskóla ásamt breiðum hópi hönnuða og listafólks í heimabyggð skólanna.