Hoppibelgurinn í lamasessi

2.5.2023

Eins og íbúar hafa sennilega tekið eftir þá hefur hoppubelgurinn verið í lamasessi í nokkrar vikur. Því miður var unnið skemmdarverk á honum og það hefur reynst erfitt að lagfæra skemmdirnar m.a. vegna kulda. Vonandi tekst þó að laga hann á næstu vikum og biðlum við til íbúa að sýna þolinmæði. Hoppibelgurinn ásamt svo mörgu öðru hér á Höfn er sameign okkar íbúanna. Það er sameiginleg ábyrgð okkar að ganga vel um eignir okkar og reyna eftir fremsta megni að koma í veg fyrir skemmdir. Bærinn okkar er nefnilega svo frábær. Við þurfum að hjálpast að við að halda honum þannig og gera hann jafnvel enn frábærari.