• Sveitarfélagið Hornafjörður

Hross í óskilum

17.10.2024

Stóð af hrossum hafa verið að þvælast milli Djúpár og Hornafjarðarfljóts. Lausaganga hrossa við þjóðveg getur verið hættuleg vegfarendum og einnig skepnunum.  Sveitarfélagið auglýsir eftir eiganda þeirra. 

Hægt er að hafa samband við afgreiðslu Ráðhúss í síma 470 8000 eða með tölvupósti á afgreidsla@hornafjordur.is