Íbúafundir um fjárhagsáætlun 2025
Sveitarfélagið boðar til tveggja opinna funda þar sem kynnt verður fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2025 og framkvæmdaáætlun næstu fjögurra ára.
Farið verður yfir rekstur yfirstandandi árs, stöðu framkvæmda og kynntar áherslur næsta árs.
Fundirnir verða haldnir í fyrirlestrasal Nýheima.
- Fimmtudaginn 5. desember klukkan 17:00 - 18:00
- Föstudaginn 6. desember klukkan 12:00 - 13:00
Föstudagsfundinum verður streymt og fylgjast má með fundinum með því að smella hér.