Íbúafundur um legu Hringvegar og landnotkun í Öræfum
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Bæjarstjórn býður til kynningar- og umræðufundar um skipulagsmál í Öræfum í Hofgarði þann 15. október kl. 16:30-18:30. Efni fundarins er:
Kynningar Vegagerðarinnar á valkostum um legu þjóðvegar 1 og umræður um þá, m.a. í samhengi við þróun landnotkunar, einkum íbúabyggðar.
Kynning skipulagsráðgjafa á tillögum að almennum skipulagsákvæðum á landbúnaðarsvæðum, skógræktarsvæðum, verslunar- og þjónustusvæðum og afþreyingar- og ferðamannasvæðum. Tækifæri til spurninga, ábendinga og athugasemda.
Boðið verður upp á hressingu.
Íbúar í Öræfum og aðrir sem hafa áhuga á framtíðarþróun svæðisins eru hvattir til að mæta!
Upplýsingar um endurskoðun aðalskipulags má finna á vefnum www.hornafjordur.is/adalskipulag.
Brynja Dögg Ingólfsdóttir, umhverfis- og skipulagsstjóri