Íbúar eru beðnir að hreinsa frá niðurföllum
Íbúar eru beðnir að hreinsa frá niðurföllum til þess að koma í veg fyrir að vatnstjón. Samkvæmt veðurspá má gera ráð fyrir talsverða rigningu næstu daga. Rigningarvatn þarf að komast sína leið og er fólki bent á að hreinsa frá niðurföllum til að fyrirbyggja vatnstjón. Í bænum er nú talsverður snjór þannig að niðurföll eru mörg hver á kafi í snjó og biðjum við fólk að huga að niðurföllum framan við hús sín.
Við minnum einnig öll heimili og fyrirtæki á að það er ykkar ábyrgð að tryggja að ruslatunnur séu vel lokaðar og úrgangur fjúki ekki burt.
Gætið þess að allt sorp sé vel lokað í ruslatunnum og að ruslatunnur séu varðar fyrir veðri og vindum. Munið að laust rusl á aldrei að vera skilið eftir utandyra ef það kemst ekki í tunnuna.