Jólin eru rétt handan við hornið
Eins og margir hafa tekið eftir er ekki búið að setja skraut á ljósastaura í bænum.Í byrjun september var lögð inn pöntun fyrir nýju skrauti á alla ljósastaura og er von á því í til okkar í næstu viku, líklega 13. desember. Um leið og nýja skrautið er komið til Áhaldahússins þá fara starfsmenn í að hengja það upp!
Við viljum öll hafa bæinn okkar fallegan og vel skreyttan yfir hátíðirnar og verður engin undantekning á því þetta árið.
Hver veit nema að það fái að vera lengur uppi en seinustu ár.
Sigfinnur Mar
Bæjarverkstjóri