Könnun vegna fyrirhugaðrar ljósleiðaravæðingar í þéttbýli á Höfn

13.8.2024

Sveitarfélagið Hornafjörður áformar að taka tilboði Fjarskiptasjóðs um að ljósleiðaravæða þau heimili í þéttbýli sem eru ekki nú þegar komin með ljósleiðaratengingu.

Áður en framkvæmdir hefjast á grundvelli styrks frá sjóðnum þá þarf sveitarfélagið að kanna eftirfarandi:

  1. hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast tengja styrkhæf heimilisföng á markaðslegum forsendum. 
  2. hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast leggja og tengja eigið ljósleiðaranet í skurði/lagnaleiðir sem sveitarfélagið kostar.

Þau fjarskiptafyrirtæki sem kunna að hafa áhuga geta haft samband við Sveitarfélagið Hornafjörð fyrir 31. ágúst n.k. í netfangið afgreidsla@hornafjordur.is

Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri