Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki
Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2023.
Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.
Umsóknum skal fylgja:
- Greinargóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
- Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu verkefnisins.
- Upplýsingar um helstu samstarfsaðila.
- Fjárhagsáætlun verkefnisins þar sem fram kemur framlag samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um.
- Áform um kynningu á niðurstöðu verkefnisins.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk. og skal umsóknum skilað á rafrænu formi til ritara sjóðsstjórnar, Þórunnar Elfu Sæmundsdóttur hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, merktar Kvískerjasjóður, á netfangið: thorunn.elfa@urn.is
Tilkynnt verður um styrkveitingar fyrir lok mars og verður öllum umsóknum svarað.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Roysdóttir formaður sjóðsstjórnar í síma: 845 4559 eða á netfangi: hafdisroysdottir@gmail.com
Kvískerjasjóður var stofnaður af umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknarstyrkja til einstaklinga, félagasamtaka og stofnana.
Nánari upplýsingar um Kvískerjasjóð og störf hans er að finna á www.kviskerjasjodur.is