• Barnvaent-sveitarfelag-thumbnail

Myndband ungmennaráðs um Barnvænt sveitarfélag

28.1.2025

Frá árinu 2020 hefur Sveitarfélagið Hornafjörður unnið að því að verða Barnvænt sveitarfélag undir handleiðslu UNICEF. Í því felst að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla stjórnsýslu sveitarfélagsins. Um er að ræða hugafarsbreytingu sem tekur tíma að festa í sessi en mikilvægt að vinna að.

Í lok árs 2023 fékk sveitarfélagið samþykkta aðgerðaráætlun sem unnið hefur verið að. Síðustu vikur hefur ungmennaráð Hornafjarðar ásamt verkefnastjóri á fræðslu- og frístundasviði og fleirum rýnt í aðgerðaráætlunina og metið hvernig sveitarfélagið hefur staðið sig í framkvæmd hennar. Lokaskýrsla sveitarfélagsins um verkefnið verður lögð fyrir UNICEF á allra næstu dögum.

Hluti af lokaskýrslunni á að vera greinargerð frá ungmennaráði en ungmennaráð óskaði eftir að skila greinargerðinni í formi myndbands sem nú er komið í loftið. Í myndbandinu er farið yfir aðgerðir sveitarfélagsins auk þess sem það fræðir áhorfendur um Barnasáttmálann. Myndbandið er með íslenskum , enskum og pólskum texta og eru allir hvattir til að kynna sér efnið.

https://youtu.be/-BggsKSI4DQ

Aðgerðaráætlun sveitarfélagsins er einnig aðgengileg í heild sinni á undirsíðu sveitarfélagsins sem tileinkuð er Barnvænu sveitarfélagi. Þegar lokaskýrslan verður tilbúin, verður hún einnig aðgengileg á sömu síðu.

Ef allt gengur að óskum mun UNICEF veita Sveitarfélaginu Hornafirði formlega viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag við hátíðlega athöfn í mars.