• 2024-Forsetahjon-1340_20x30cm_Aldis-Palsdottir

Opinber heimsókn forseta Ísland, Höllu Tómasdóttur til Hornafjarðar

11.3.2025

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, koma í opinbera heimsókn í Hornafjörð dagana 12.–13. mars. Þar tekur bæjarstjórn á móti forsetahjónum og kynnir þeim mannlífið og margvíslega uppbyggingu á svæðinu. Er þetta fyrsta opinbera heimsókn forsetahjónanna innanlands.  Forsetahjón munu dvelja á Höfn en einnig ferðast um Suðursveit, Mýrar  og Öræfi. Á fyrri degi heimsóknar, á miðvikudag, heimsækja forsetahjón helstu stofnanir og fyrirtæki í þéttbýlinu á Höfn í Hornafirði. Fyrir hádegi er Grunnskóli Hornafjarðar heimsóttur, einnig leikskólinn Sjónarhóll og loks hjúkrunarheimilið Skjólgarður. Auk þess er farin vettvangsferð um nýja hjúkrunarheimilið sem tekið verður í notkun í sumar. Forsetahjón snæða síðan hádegisverð á Ekru með félagsmönnum í Félagi eldri Hornfirðinga. Eftir hádegi á miðvikudag kynna forsetahjón sér atvinnu- og menningarlíf á Höfn. Þau heimsækja sjávarútvegsfyrirtækið Skinney – Þinganes hf og bruggsmiðjuna Heppu við höfnina. Því næst fá þau kynningu á kraftmiklu starfi Björgunarfélags Hornafjarðar og mikilli uppbyggingu sem felst m.a. í kaupum á nýju björgunarskipi, framkvæmdum við nýja björgunarmiðstöð og smíði á öflugasta björgunarjeppa landsins sem tekinn var í notkun síðasta haust. Þaðan fara forsetahjón í hið fornfræga samkomuhús Sindrabæ sem verið er að endurnýja sem menningarmiðstöð. Þá heimsækja þau Svavarssafn, listasafn Svavars Guðnasonar og loks þekkingarsetrið Nýheima en þar er suðupottur stofnana sem starfa á sviði menntunar, menningar, nýsköpunar og rannsókna á Suðausturlandi. Að lokinni kynningu á starfseminni þar tekur við kaffisamsæti þar sem öllum íbúum sveitarfélagsins er boðið að koma og hitta forsetahjón. Kvenfélagið Vaka annast veitingar og nemandi úr Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu kemur fram með tónlistaratriði. Um kvöldið býður bæjarstjórnin forsetahjónum til hátíðarkvöldverðar á veitingastaðnum Pakkhúsinu. Á öðrum degi heimsóknarinnar er farið í dreifbýli sveitarfélagsins. Dagurinn hefst við Hoffell þar sem forsetahjón fá kynningu á uppbyggingaráformum Bláa lónsins. Þaðan er haldið í kúabúið Flatey á Mýrum auk þess sem Þórbergssetrið að Hala í Suðursveit er heimsótt. Þá liggur leið að Jökulsárlóni þar sem rætt er við landverði um starf þeirra í Vatnajökulsþjóðgarði. Íbúum á Mýrum og í Suðursveit er síðan boðið að snæða hádegisverð með forsetahjónum að Hótel Jökulsárlóni. Eftir hádegi liggur leiðin að Hofgarði í Öræfum þar sem rekinn er fámennasti grunn- og leikskóli landsins. Opinberri heimsókn forsetahjóna lýkur í Hofgarði þar sem efnt til kaffisamsætis með íbúum Öræfasveitar áður en ekið er aftur suður.