Ormahreinsun hunda og katta
Héraðsdýralæknirinn Janine Arens verður með ormahreinsun fyrir hunda og ketti 18. og 19. desember frá kl. 13:00 til 14:00 í Áhaldahúsi sveitarfélagsins að Álaleiru 2.
Hunda og kattaeigendur eru hvattir til að nýta sér þessa tíma sem í boði eru, ef annar tími hentar betur er hægt að hringja í 690 6159 eða senda henni tölvupóst á janine@javet.is
Hunda og kattaeigendum er bent á að það er brot á samþykktum um hunda og kattahald ef ormahreinsun er ekki sinnt og kostar jafnvel leyfissviptingu. Því er hunda- og kattaeigendum bent á að nýta umrædda tíma til þessa að koma dýrum sínum í árlega ormahreinsun.