Sorplosun í þéttbýli á miðvikudag
Vegna óviðráðanlegra orsaka verður sorplosun í þéttbýli miðvikudag 11. júlí í stað 12. og 13. júlí eins og auglýst er í sorpdagatali sveitarfélagsins.
Starfsmenn Íslenska Gámafélagsins ehf. vonast til að breytingin valdi íbúum ekki óþægindum.