Staðan í dag 21. mars 2020 vegna Covid-19
Tvö staðfest smit og 32 í sóttkví í Sveitarfélaginu Hornafirði
Niðurstöður sýnatöku sýna að nú eru 2 staðfest Covid-19 smit í sveitarfélaginu, eru þau í Öræfunum og Suðursveit. Báðir einstaklingarnir eru komnir í einangrun og er smitrakningarteymið í greiningarvinnu.
32 voru komnir í sóttkví í dag en mun sá fjöldi aukast í kjölfar vinnu smitrakningarteymis vegna seinna smitsins.
Við biðlum til fólks, að sýna ró og yfirvegun í þessum undarlegu aðstæðum og að fylgja leiðbeiningum Landlæknis til hins ítrasta og virða samkomubannið.
Sterkasta vopn okkar er sápu handþvottur og sprittun handa í kjölfarið. Við sjálf erum besta sóttvörnin gegn útbreiðslu veirunnar.