• Plokkdagurinn-202501_1745421827538

Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn!

23.4.2025

Stóri plokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 27. apríl og mun Sveitarfélagið Hornafjörður að sjálfsögðu taka þátt.

Á stóra plokkdeginum sameinast fólk í að ganga um umhverfi sitt og tína upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til og liggur á víðavangi eftir vindasaman vetur. Dagurinn markar upphaf plokk tímabilsins og er hugsaður sem vitundavakning og hvatning til okkar allra um að huga að umhverfi okkar og neyslu.

Nokkuð ber á rusli í þéttbýli sveitarfélagsins og áríðandi að koma því sem fyrst úr umhverfinu áður en það hverfur á haf út eða grefst í náttúruna. Í þeim tilgangi verður sorpílátum komið upp á nokkrum stöðum á Höfn og í Nesjahverfi undir plokkaðan úrgang. Staðsetningu ílátanna má finna á kortum neðst í þessari frétt en ílátin verða aðgengileg frá miðvikudeginum 24. apríl fram að 2. maí.

Plokkdagurinn-202501_1745421827538

Þeir sem vilja láta gott af sér leiða með því að plokka geta fengið lánaðar plokktangir og glæra ruslapoka á bókasafni sveitarfélagsins í Nýheimum á meðan birgðir endast. Plokkarar þurfa því aðeins að útvega sér hanska!

Almennt er litið á plokkaðan úrgang sem blandaðan úrgang sem fer í urðun. Sé úrgangur hins vegar tiltölulega hreinn er hægt að skila honum á flokkunarbarinn við söfnunarstöðina til endurvinnslu.

Þá má einnig vekja athygli á heimasíðu Stóra plokkdagsins, plokk.is, en þar má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um plokk. Þá má jafnframt nefna Facebook síðu Plokk á Íslandi sem er hópur áhugafólks um útivist og að halda umhverfinu ruslfríu. Hópurinn telur tæplega átta þúsund manns sem er kominn á fullt við að plokka í sínu nærumhverfi.

Frítt er í sund á Höfn þann 27. maí fyrir alla sem taka þátt! Ekkert er skemmtilegra en að njóta góða veðursins og fallegu náttúrunnar með því að tína rusl og nýta sér síðan frían sundaðgang! Allt sem þú þarft að gera er að sýna mynd af því sem þú tíndir.

Margar hendur vinna létt verk og því skiptir framtak hvers og eins heilmiklu máli fyrir umhverfi og samfélag. 

Staðsetningar sorpíláta undir plokkaðan úrgang eru hér að neðan:

Plokkdagurinn-202502