Styrkumsóknir fyrir árið 2025
Þau félög og félagasamtök sem vilja senda inn erindi eða styrkumsókn til atvinnu- og menningarmálanefndar, fræðslu- og frístundarnefndar eða til bæjarráðs, vegna viðburða eða reksturs félagasamtaka þurfa að skila umsóknum fyrir 13. desember.
Styrkumsókn þarf að fylgja greinargerð eða ársreikningar/uppgjör fyrir síðasta fjárhagsár, og upplýsingar um fyrirhugaða nýtingu styrks og starfsemi styrkumsækjanda á liðnu ári.
Reglur um úthlutun rekstrar og verkefnastyrkja atvinnu- og menningarmálanefndar má finna hér Reglur-um-uthlutun-rekstrar-og-verkefnastyrkja-atvinnu-1-.pdf
Reglur um úthlutun styrkja fræðslu- og frístundarnefndar má finna hér Reglur-um-uthlutun-styrkja-fraedslu-og-fristundanefndar.pdf
Styrkumsóknir eru aðgengilegar á íbúagátt sveitarfélagsins http://ibuagatt.hornafjordur.is, þar er hægt að fylla út eyðublöð og hlaða inn viðhengjum með umsókn.