Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir Gömlubúð til leigu
Gamlabúð er vel staðsett við hið líflega hafnarsvæði á Höfn og er eitt sögufrægasta hús Hornafjarðar.
Gamlabúð er vel staðsett við hið líflega hafnarsvæði á Höfn og er eitt sögufrægasta hús Hornafjarðar. Það var upphaflega byggt árið 1864 við Papós í Lóni en síðar flutt til Hafnar. Lengst af var rekin verslun í húsinu, en síðar byggðasafn, Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs og nú síðast upplýsingamiðstöð ferðamanna. Húsið býður upp á mikla möguleika og hentar vel undir fjölbreyttan rekstur. Það er á þremur hæðum og er heildarstærð þess um 300 fm. Lyfta er í húsinu og gott aðgengi fyrir alla.
Leigutaka verður heimilt að nýta húsnæðið á þann hátt sem samið verður um en æskilegt er að í umsókn sé gert ráð fyrir upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Öll breyting á húsnæðinu er háð samþykki bæjarráðs og skal vera á kostnað og ábyrgð leigutaka.
Með umsókn skal fylgja greinargerð um fyrirhugaða starfsemi og rekstrarfyrirkomulag í húsinu. Skilmálar sem einkum verður litið til við ákvörðun um val á leigutaka eru eftirfarandi:
- Aukið aðdráttarafl Hafnar sem áfangastaðar
- Rekstur upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn
- Áformaður leigutími
- Endurgjald fyrir leigu húsnæðis
- Opnunartímar
- Reynsla og þekking viðkomandi aðila af rekstri
- Nýting hússins með tilliti til sérstöðu þess
Athugið að vægi skilmálanna er óháð röðun þeirra.
Allar nánari upplýsingar veitir Árdís í síma 470-8000 eða tölvupósti ardis@hornafjordur.is
Bæjarráð Hornafjarðar