Syndum

5.11.2024

Landsátak í sundi 1. - 30. nóvember

Nú stinga landsmenn sér til sunds og safna sundmetrum. Taktu þátt í að synda hringinn í kringum landið. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. 

Allir þátttakendur fara í pott og geta unnið vegleg verðlaun.