Tilkynning til íbúa sem fengu ekki pappírspokastand
Skipt úr lífrænum pokum yfir í pappírspoka fyrir matarleifar
Sveitarfélagið Hornafjörður er að skipta úr lífrænum pokum yfir í pappírspoka fyrir matarúrganga. Pappírspokum og stöndum undir þá hefur verið dreift til íbúa bæjarins, þökk sé frábæru starfi Sindra kvennaliðsins í blaki.
Fyrir þá íbúa sem ekki hafa fengið poka og ílát:
Ef þú varst ekki heima þegar dreifingin fór fram og fékkst ekki pappírspokastand og poka, getur þú sótt þá í Ráðhúsið. Hvert heimili á rétt á einum standi og tveimur skömmtum af pappírspokum, alls 80 pappírspokum.
Athugið:
Frá og með 1. júlí 2025 verður ekki lengur tekið við lífrænum úrgangi í grænum niðurbrjótanlegum pokum.
Frekari upplýsingar:
Leiðbeiningar um notkun pappírspoka.Takk fyrir samstarfið í átt að sjálfbærara úrgangsstjórnunarkerfi.