Tilkynning vegna gruns um E-Coli í neysluvatni
Ítrekuð eru tilmæli til íbúa um að sjóða skuli neysluvatn þar til annað verður tilkynnt.
Leiðbeiningar um suðu neysluvatns má finna á eftirfarandi slóð: https://www.mast.is/static/files/library/Fr%c3%a9ttatilkynningar/leidbeiningar-suda-neysluvatns-12-09-2018.pdf
Grunur vaknaði um e. coli bakteríu í neysluvatni eftir að sýni voru tekin í fyrirtæki hér á staðnum á mánudag í síðustu viku. Fyrirtækið upplýsti sveitarfélagið og Heilbrigðiseftirlit Austurlands um stöðuna seinni part föstudags þegar niðurstöður úr sýnatöku bárust þeim. Í kjölfarið hóf sveitarfélagið samtal við heilbigðiseftirlitið um næstu skref og upplýsti íbúa um stöðuna í samráði við heilbrigðiseftirlitið en ekki var fyrir hendi grunur um hópsýkingu.
Ekki er útilokað að yfirborðsvatn hafi komist í vatnsból Hornafjarðar í kjölfar mikilla rigninga. Þegar slíkt gerist getur það valdið mengun með örverum og gruggi.
Heilbrigðiseftirlit Austurlands tók sýni á nokkrum stöðum í dreifikerfi vatnsveitu Hafnar í morgun mánudag og kom þeim með fyrsta flugi á rannsóknarstofu Matís ohf. til greiningar. Ástæða þess að ekki voru tekin sýni fyrr er að frá því að vitneskja barst heilbrigðiseftirlitinu og fram á mánudagsmorgun var lítið hægt að gera til að fá sýnin greind á rannsóknarstofu.
Ræktun á örverum í neysluvatnssýnum er tímafrek og eru frumniðurstöður úr sýnatökum frá því í morgun væntanlegar um hádegisbilið á morgun, þriðjudag, en staðfestar niðurstöður berast í síðasta lagi á fimmtudaginn. Á meðan eru íbúar hvattir til að gæta fyllstu varúðar og sjóða neysluvatn eins og áður segir.
Heilbrigðiseftirlitið mun fylgjast með vatnsgæðum næstu daga og tilkynna íbúum um niðurstöður sýnatöku þegar þær liggja fyrir og verða íbúar upplýstir um þróun mála eftir því sem fram vindur.