Tilnefning til íslensku menntaverðlaunanna
Minnt er á að frestur til að senda inn tilnefningar til íslensku menntaverðlaunanna er 1. júní nk.
Íslensku menntaverðlaunin er viðurkenning fyrir framúrskarandi skólastarf, menntaumbætur og þróunarverkefni. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru veitt í þremur aðalflokkum:
1. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
2. Framúrskarandi kennari
3. Framúrskarandi þróunarverkefni
Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Fólk er beðið að senda inn tilnefningar og vekja þannig athygli á því gróskumikla skólastarfi sem fram fer í sveitarfélögum landsins. Viðtakendur eru auk þess vinsamlegast beðnir um að kynna verðlaunin sem víðast, til dæmis á heimasíðu og Facebooksíðu sveitarfélaga.
Sjá nánar: http://skolathroun.is/menntaverdlaun/ og
Myndband frá afhendingu Íslensku menntaverðlaunanna 2020: https://fb.watch/5JLydYmTWY/