• Award-plate2

Umhverfisviðurkenningar 2024

27.9.2024

Umhverfis-og skipulagsnefnd auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2024.

Auglýst er eftir tilnefningum á einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum, fyrirtækjum, lóðum eða lögbýlum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem hafa með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúruna og umhverfið að eðlilegum þætti í hversdagslífi sínu eða hafa á annan hátt lagt sitt af mörkum til verndunar á náttúru og umhverfi.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 25. október.

Hægt er að senda tilnefningar á netfangið skipulag@hornafjordur.is eða í afgreiðslu ráðhússins við Hafnarbraut 27.

Award-plateUmhverfisviðurkenningarskjöldur

Í markvissri viðleitni til að stuðla að hringrásarhagkerfi var þessi umhverfisvæni skjöldur handunnin úr rekaviði sem safnað var á staðnum. Með því að sameina sjálfbærni og nútímatækni var sérfræðiþekking Fab Lab nýtt til að þrívíddarprenta plexíglerplötuna, sem skapar einstaka og merkingarbæra táknmynd umhverfisábyrgðar.