Umsóknir um styrki Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2019
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknarsjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins. Atvinnumálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum.
Nánari upplýsingar eru veittar í ráðhúsi, Hafnarbraut 27 Höfn eða á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hornafjordur.is undir stjórnsýsla/reglur og samþykktir.
Umsóknir eru aðgengilegar á íbúagátt sveitarfélagsins http://ibuagatt.hornafjordur.is, þar er hægt að fylla út eyðublöð og hlaða inn viðhengjum með umsókn.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2019.
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmistöðvar Hornafjarðar