Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar

10.9.2024

Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar  4. - 29. október.

Námskeiðið í Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar verður haldið á Höfn 4. - 29. október næstkomandi. Námskeiðið stendur yfir í fjóra þriðjudaga, tvo tíma í senn, samtals 8 stundir.

 

Foreldrar læra aðferðir til að styrkja eigin hæfni, laða fram æskilega hegðun barnsins og fyrirbyggja erfiðleika á jákvæðan hátt. Best er að foreldrar mæti báðir á námskeiðið, sem er í boði sveitarfélagsins.

Foreldrar, sem setið hafa allt námskeiðið, geta sótt um niðurfellingu á einu mánaðargjaldi fyrir sín börn, gegn framvísun á staðfestingu á þátttöku.

Tími: Kennt verður þriðjudagana 8. okt.; 15. okt.; 22. okt. og 29. okt. frá kl. 19:30 - 21:30, 4 skipti alls.

 

Staður: Námskeiðið verður haldið í Miðgarði, Víkurbraut 24, Höfn.

 

Mæta þarf í öll skiptin til að fá niðurfellingu á mánaðargjaldi.

Skráning fer fram á deild barns í leikskólanum; með tölvupósti: svavakristin@hornafjordur.is, sigridurgisl@hornafjordur.is eða á heilsugæslunni í síma 432-2900 frá kl 11-12 virka daga.