Vöruhúsið hlaut Hvatningaverðlaun íslensku menntaverðlaunanna
Vilhjálmur Magnússon forstöðumaður Vöruhúss tók við Hvatningaverðlaunum íslensku menntaverðlaunanna við hátíðlega athöfn á Bessastöðum ásamt nemanda sínum Sigursteini Traustasyni.
Vilhjálmur segir það mikinn heiður fyrir Vöruhúsið og starfið í Fab Lab smiðju
Hornafjarðar að taka við Hvatningarverðlaunum Íslensku menntaverðlaunanna 2021.
Vöruhúsið er nýsköpunar, list- og verkgreinahús okkar Hornfirðinga og hefur
verið starfrækt síðan 2012. Starfsemin og húsið sjálft hefur þróast töluvert
síðan byrjað var á verkefninu og í dag er Vöruhúsið búið að skapa sér ákveðna
sérstöðu á landsvísu. Þessi sérstaða er sú að styðja við formlegt og óformlegt
nám í skapandi greinum,
vera vettvangur þverfaglegrar samvinnu, þar sem einstaklingar, stofnanir og
fyrirtæki geta nýtt aðstöðu, sótt þekkingu og treyst tengslanet sitt.
Vöruhúsið vinnur náið með ýmsum stofnunum í fjölbreyttum verkefnum hvort sem
það eru styrktar verkefni eða önnur verkefni sem falla undir nýsköpun eða aukið
framboð á tæknimenntun á Íslandi. Þar má nefna stofnanir eða samstarfsnet eins
og Fab Lab Ísland, FAS, Grunnskóla Hornafjarðar, Nýheima Þekkingarsetur,
Háskóla Íslands, Háskólafélag Suðurlands, SASS og fleiri stofnanir.
Það má ekki gleyma því hversu mikla trú og traust Sveitarfélagið Hornafjörður
hefur sýnt Vöruhúsinu. Það er ekki gefins að reka slíka aðstöðu og hvað þá að
ráðast í þær endurbætur á húsnæðinu sem nýlega lauk. Þessi verðlaun eru því
einnig sveitarfélagsins og þeirra sem hafa veitt verkefninu framgöngu.
Sérstaklega vil ég nefna þátt fræðslustjórans Ragnhildar Jónsdóttur sem lét
nýlega af störfum. Ragga, eins og hún er kölluð, hefur staðið eins og klettur
með verkefninu frá upphafi og þökkum við henni fyrir vel unnin störf.
Að lokum viljum við þakka Samtökum áhugafólks um skólaþróun, að hafa tekið
eftir því sem við erum að gera og veita okkur þessi virðulegu verðlaun. Einnig
viljum við þakka Guðna Th. forseta fyrir gott heimboð og hlýjar móttökur í
okkar garð á sjálfan afhendingardaginn.
Hornfirðingar við getum verið stolt af Vöruhúsinu og minni ég á að þangað eru
allir velkomnir. Verum jákvæð og skapandi!
Fyrir hönd Vöruhússins, Vilhjálmur Magnússon.